Leita í fréttum mbl.is

Bloggið

Hér er auðvitað endalaust fjör. Svo mikið að ég gleymi að blogga. Ekki gott en er ekki best að ráða bót á því ?

Janúar

 Fullmikið að gera. En uppúr þessum mánuði stendur að ég stóð fyrir ákaflega skemmtilegri uppákomu í saumaklúbbunum. Stelpurnar eru full latar að setja á sig varalit og mér fannst þetta ekki ganga lengur. Ég náttúrlega set upp andlitið á hverjum degi og er mjög dugleg með varalitinn J Eins og Hollywood  stjörnurnar með minn prívat hárgreiðslumeistara. Svona tískudrós eins og ég þarf á slíku að halda.

 En nóg um það. Hér var semsagt námskeið þar sem Heiðar snyrtir tók hverja og eina fyrir og auk þess spáði fyrir um spennandi tíma. Mjög skemmtilegt og svofrv. En veit ekki alveg hvort stelpurnar átta sig á gildi varalitsins ! Sumar fengu ótrúlegar upplýsingar og gaman verður að fylgjast með hvernig sumum reiðir af á árinu J

Ég byrjaði líka í sundfimleikum og náði fljótt koparnum. Ég ætlaði svo að vinda mér í bronsið en var bent á að það ásamt silfrinu væri upptekið af handboltalandsliðinu. Það er því ekkert annað að gera en stefna á gullið. Það er ekki tryggt en ég mun tryggja mér það innan tíðar !

Ég náði að skila inn greininni minni og var mjög ánægð með hana.

Febrúar mætti í öllu sínu veldi. Tvíburarnir urðu 13 ára og eldast hratt en samt er ég síung. Greininn mín féll í góðan jarðveg og sigurinn var minn.

 Ég eignaðist lokins svona fullorðins digital myndavél og sum módelin mín eru orðin þreytt á myndatökum. Og námskeið framundan í Photoshop og er ekki best að læra almennilega á þessa vél líka, held það bara.Ég spá því að áður en þessi mánuður sé á enda komi fréttir og það mjög góðar.


2010

Fékk áskorun um að blogga aftur. Veit ekki..........hvað finnst ykkur ?

Stöðumynd

Hef verið á fullu að sauma nóttina þeas The Night. Og svona var staðan fyrir tveimur vikum.

 Nóttin

 

 

 

 

Stöðumynd - nóttin  Og svona var staðan um síðustu helgi. Er líka búin að vera dálítið duleg í vikunni svo þetta kemur allt en það er mjög langt í land.


Ég er rík - ég er rík ....

Já ég er svo rík :)

Frábært hjá þér Unnur Ósk að benda á að ég svo rosalega mörg hlutabréf og það eina sem gerst hefur er að verð þeirra fellur ekki þau hækka ! Og þau hafa hækkað. Hef verið að bjástra við að koma þeim öllum í eitt og sama herbergið. Þetta er stórt herbergi um 14 fermetrar og þótt það sé að fyllast er samt pláss fyrir meira LoL

 


Uss...

Ja nú lá ég í því. Tekin í bólinu eða þannig .

Vinnukonan mín ( Gunna en heitir samt ekki Gunna ) kom kl rúmlega átta í morgun. Það hafði gleymst að láta mig vita og hér stóð ég með úfið hár, varalitalaus já og andlitslaus ( að mestu)  í bleiku náttfötunum með bleiku handstúkurnar og ekki búin að fá kaffi. Díses......

Gunna þessi bara brosti og sótti ryksuguna í hvelli og fór að vinna sitt verk. Ég setti upp andlitið fann það inná baði þar lá líka varaliturinn og hárbustinn svo þetta small saman. Fram kom ég svo fögur að sjá og fann búning dagsins og potaði mér í föt.

Svo var að smella á takkan á kaffivélinni ( var búin að gera hana tilbúna) og í bollan rann kaffið ljúft.

Ég er enn með gaddavír í hálsinu og komin með þessa líka fínu verki í eyrun og niður á brjóst.

Þetta kallast víst flensa. Er búin að panta símaviðtal við Dr.Home sem mun hringja fljótlega. Spennandi að vita hvað hún segir og gerir.

Strákarnir hósta enþá svo best er að tala við Dr Home um þá í leiðinni.

Eigið góðan dag.

 


Gaddavír í hálsi

Ég get ekkert sungið á köflum vart stunið upp orði ... ég er með gaddavír í hálsinum. Úff helv... er þetta vont og svo hósta ég eins og stórreykingarkona. Djöv... ég pantaði þetta ekki. Pöntunin mín kom ekki það er sko greinilegt.

 

Hef verið í bómull í dag. Sitið og saumað og horft á sjóinn. Talað við fuglana og verið í samningaviðræðum við sjálfa mig. Haft vinningin en stundum tapað Sideways

Er að spá í að fara að skrifa skáldsögu með ævisöguívafi. Eiginmaðurinn skoraði á mig


Ja hérna..

Ég er svo lost að ég verð örugglega aldrei found...

Þurfti að eiga við bankann, tala við tvær konur átti ekki von á neinu sérstöku en þær voru svo kurteisar að ég þurfti að klípa mig og bíta innan í kinnina bara til að athuga hvort ég væri ég og væri hérna megin en ekki í því efra eða neðra.  Veit ekki alveg hvað er að gerast með þessar dömur þær hafa kannski fengið tvær þrjár bláar .........

 

En svona fyrir utan þetta er ég að taka til í útsaumsdótinu mínu. Skil bara ekkert hvaðan þetta kemur allt. Vissi heldur ekki að ég ætti þetta allt. Já og sumt..... ég meina hvað var ég eiginlega að spá í að gera við þetta allt. Þótt ég yrði skrilljón ára og saumaði 24/7 ( nei ekki 24 júlí) þá næði ég engan vegin að klára þetta allt og hvað gerði ég þá með það sem mig dauðvantar og á ekki. ??? Whistling

Held ég verði að halda uppboð en samt ekki á mér sjálfri það fæst ekkert fyrir mig svona ósaumaða.


Sunnudagur

Ég átti bara góða viku. Við saumaklúbbskellur fórum í boð hjá Kvenfélagi og áttum góða stund með þeim. Nei nei ég fer ekki að ganga í kvenfélag það er bara ekki nógu krassandi fyrir mig ég sé það allavega ekki.

Ég þrammaði svo í Smáralind á miðvikudagin fór samt ekki stafnana á milli en ok ég tók svona hluta af báðum hæðum. Fór með einni góðri vinkonu á kaffihús. Ágætiskaffi en ekki nógu heitt og ekki nógu sterkt en það mátti drekka það Wink

Sl föstudag var svo saumaklúbbur og var skemmtilegt eins og alltaf. Áttum góðar samræður um leggins og árshátíðarkjóla. Ég er þeirrar skoðunar að þetta hreinlega passi ekki saman ! Sumir sýndu undirfötin sín við háværan hlátur. Já já sálfsagt getur sé einhver til um hver sýndi hvað LoL

Í dag er bara leti held ég sé að fá helv.... pest og það hentar ekki vel mínum liðum. En ég bara teikna upp mynstur og syng með Ipodnum enda nýlega búin að slá í gegn á tónleikum fyrir fólkið mitt og það hreinlega án þess að gera mér grein fyrir því....


Ég lofa að vera stillt.....

Bogmaður: Stundum er betra að láta kjurt liggja og það skaltu hafa í huga þegar þú hittir fólk sem hefur gert eitthvað á þinn hlut

Laugardagur til lukku

Skrapp með einni vinkonu minni í Garðheima í dag. Það á að ferma hjá henni og ég er svona þeirrar skoðunar að hún hafi þurft á mér að halda. Allavega skoðaði ég svo mikið og kom við alla hluti að fólk hefur örugglega talið að hjá mér yrði fermt í ár. En það eru sko tvö ár í það en alltaf gott að vera vel undirbúin. Eða það held ég og er farin að skrá hjá mér ýmislegt.

Í gær fékk ég svo endanlega nýju græjurnar. Nei elskurnar mínar ekki steríógræjur nei nei sko nýtt heyrnartæki .. jú kannski má segja að þetta séu steriógræjur. Mér fannst alveg dúndur þegar ég fékk gamla tækið og eru bara 5 ár síðan en þetta er alveg yfirmátasúperbrilljant tæki. Ég heyri grasið gróa og já það er farið að taka við sér sumstaðar.´

Sl fimmtudag var ég svo á Akranesi. Fékk stærri skammt sem vonandi endist mér betur og auk þess áttum við Dr. Liðmann gott samtal í tæpan klukkutíma. Hann er alveg súper. Svo hitti ég forstjórann og kyssti hann hundrað sinnum en við erum gamlir vinnufélagar. Held að konana hans hafi örugglega fundið bleikan varalit bak við eyrun á karlinum um kvöldið Kissing

Framundan er annars skemmtileg vika. Er að fara með netkellunum mínum í boð á þriðjudaginn auk þess er margt annað í boði sumt kemur örugglega á óvart.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband