Færsluflokkur: Bloggar
1.5.2007 | 12:24
1 maí
Fengum heimsókn í gær frá Samfylkingunni tvær ágætis þingkonur. Ég er náttúrlega í stjórnarandstöðu við þær og langt frá því sammála þeim í mörgum málum.
Hvers vegna í ósköpunum á að greiða námsbækur fyrir framhaldsskóla? Jú jú víst er það dýrt veit nokk um það enda einn sonurinn í framhaldsskóla. En væri ekki betra að byrja á byrjuninni ? Veit líka að sumir hafa ekki efni á því en tel að það sé ekki stór hópur.
Hvað með námsbækur s.s stílabækur, möppur og fleira fyrir grunnskólann? Og allt hitt sem þarf að kaupa. Veit vel að þarna eru sveitarfélögin að verki EN það má setja peninga frá hægri til vinstri svo þetta gengur alveg upp. Hvað með að greiða niður eða greiða alveg heitan mat í skólnum fyrir grunnskólann og byrja þar að kenna börnunum að forðast hammara, gos og sætindi. Þarna er fólk sem hreinlega getur ekki greitt sumt af þessu fyrir börnin sín.
Mér finnst líka allt í lagi að það sé nægt framboð á framhaldsskólaplássi áður en háskólar koma í öll horn landsins. Svo ég er langt frá því sammála þeim stöllum.
Annars er ég ekki mikið að velta fyrir mér pólitík þessa dagna er ekkert í vandræðum með mitt atkvæði. En það er juróvision sem ég er að velta fyrir mér og nú eru 11 dagar í juróvision og ég er búin að finna nokkur góð lög enda hlusta ég mörgum sinnum á dag á öll lögin. Ja ok ég viðurkenni ekki alveg öll. Sum eru þannig að eyrun á mér þola ekki að hlusta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2007 | 23:36
Araba afturbata p........
Það er nú alveg ótrúlegt hvað mér dettur í hug og framkvæmi. Svolítið drama alltaf en ók þegar ákvörðun er tekin á er bara að skutla sér út í laugina og taka dífu. Ég semsagt ákvað að segja upp vinnunni og vera bara ekkert að velta þessu fyrir mér meir. Bara ekki mitt skip það er á hreinu. Og svona snillingur eins og ég er fær annað skip ekki spurning.
Annars var skemmtilegt klúbbkvöld hjá okkur í vikunni og kom ein ný kona. Sú var ekki lengi að setja saman nokkur kjarngóð orð um okkur:
Ropað, sötrað, rekið við,
reyndar saumað líka.
Þar var úrvals englalið
og afturbatapíka.
Ójá þetta var heljarinnar kvöld. Og af því að það er alltaf verið að gera grín af minni juróvison ást þá kom þessi frá annari góðri konu
Eurovision teljum takt,
taktvissar í línudansi,
dettur inní Dressmann act
dama ein með eðalglansi.
Fílum allt með fílarana,
förum oft í Londontúr,
á þar leikum Arabana
er okkur vilja í kvennabúr
Það sem ég segi þessar dömur eru æði.
Framundan er spennandi vika sem endar svo með sumarbústaða ferð hjá okkur netkellum. Rosalega hlakka ég til. Þessar ferðir með þeim eru æði.
Nánar um það síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2007 | 19:51
Gleðilegt sumar
Já Gleðilegt sumar. Það er víst komið skv tímatalinu en ósköp finnst mér nú anda köldu. Og svo er hann rigningarlegur. En þetta kemur.
Enn er svo komið frí. Helgi með allri sinni dýrð. Framundan er jurovision upphitun í kvöld og svo er skemmtilegur dagur á morgun. Fundur hjá okkur netkellum. Og það pappírsfundur. Nei nei það á ekki að vinna skattframtal við ætlum að detta í kortavesen. Erum allflestar vopnaðar korta útbúnaðar tólum og ætlum að gera eitthvað við pappír með þessum tólum. Yfirmatráður okkar er búin að stúdera þetta og ætlar að miðla reynslu sinni. Þannig að þetta verður líka miðilsfundur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2007 | 22:11
2.apríl 2007
Þá er ég búin að fara til London. Skemmti mér konunglega þrátt fyrir að hafa ekki hitt Betu. Vonaðist eftir síðdegis tei með henni en því miður var hún upptekin. Koma tímar koma ráð.
Mér tókst að detta svo rækilega út úr sendiferðaleigubíl. Það var helvíti vont að skella á bakinu og er ég enn með verki. En þetta var samt virkilega smart hjá mér. Svona Dressman dettingur. Semsagt rólega dottið. Stelpurnar (vorum 7 saman) urðu dauðhræddar og Jasmin, indverski bílstjórinn okkar kom hlaupandi. En nei ég viðurkenni sko ekki að hafa meitt mig !
Svo var okkur líka rænt já okkur öllum 7 kvennsunum. Alveg ótrúlegt. En við vorum semsagt að bíða eftir Jasmin og það kom svartu bíll og bílstjórinn kom á móti mér og jú hann vissi hvert við vorum að fara og svo frv. Við skutluðumst í bílinn og á miðri leið hringir Jasmin og spyr hvar við séum. ok ég náttúrlega útskýrði það. Taldi að þetta væri annar bílstjóri frá fyrirtækinu. En nei aldreilis ekki. Þeir ræddu svo saman bílstjórarnir og hótuðu hvor öðrum lögreglunni. En allt reddaðist þetta að lokum. Og nú skemmtum við okkur yfir þessu og þökkum fyrir að hafa ekki lent í kvennabúri í austurlöndum.
Fékk ágætisveður í London og mikið eru þau komin langt í vorið þarna úti. Uss hér var svo snjóslikja yfir öllu þegar ég kom heim. En þetta kemur allt, sko vorið ....
Þegar heim kom var nóg að gera. Þvottahúsið var eins og hér byggju 100 manns og það tók tíma að vinna niður úr körfunum. Já þetta á að vera fleirtala.
S.l laugardag fylgdist ég spennt með álvers kosningunum. Gat ekki ákveðið mig. Með eða á móti? Hefði kosið að meiri munur væri þarna á milli en aðeins 88 atkvæða munur. Víst er að þótt kosningarnar séu búnar er margt enn óskýrt. Hvaða áhrif mun þetta hafa á Hafnarfjörð? ja frá a til ö. Er alveg viss um að sum þessara áhrifa munu koma mörgum spánskt fyrir sjónir
En framundan eru páskar. Frí og afslöppun. Ég ætla mér stóra hluti í útsaumnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2007 | 23:00
12 mars 2007.
Ég las áðan blogg einnar góðrar vinkonu minnar. Hún hefur undanfarið sett inn margar gamlar sögur og fleira skemmtilegt frá Mosó árunum. Við erum jafngamlar en mér fannst hún vera vona eitthvað 15 árum eldri en ég að lesa þetta. Greinilega höfum við ekki elst jafnhratt. Etv er ástæðan sú að hún býr í Noregi en ég á Íslandi.
Ég fór nú samt að hugsa um Mosó árin. Það var svo sannarlega ýmislegt brallað og stundum alveg ótrúlegt að sólarhringurinn hafi bara verið 24 tímar mv það sem við komumst yfir. Stundum vann ég 18 tíma vakt, gerði ýmislegt skemmtilegt og það langt fram á nótt og var svo mætt fyrir kl 8 næsta morgun á aðra 18 tíma vakt. Eldhress . En þetta var svo skemmtilegt og margir skemmtilegir karakterar þarna. Ójá.
En það er undirbúningur fyrir London ferðina sem tekur töluverðan tíma núna. Ágætis stór --ferðafrömuður Íslands segir að maður eigi að undirbúa sig vel og því betur sem það er gert því skemmtilegri verði ferðin. Þessi ferð er sko vel undirbúin. Og víst er að ferðafélagarnir eru skemmtilegir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007 | 20:38
Veik í dag.
Fékk alveg hræðilega eyrnaverki í nótt og svaf ekkert . Var hugsað til allra litlu barnanna sem fá eyrnabólgur. Æ-i greyin mín þið eigið alla mína samúð þetta er sárt.
En ég gat notað tímann í vel þar sem ég fór ekki í vinnu. Saumaði auðvitað . Er með skemmtilega mynd og alveg frábært handlitað efni. Æði.
Auk þess notaði ég tímann til að undirbúa London ferðina. Þetta verður frábær ferð enda mjög skemmtilegir ferðafélagar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2007 | 22:15
Léleg frammistaða.
Hverslag bloggari ertu kona? Þetta er léleg frammistaða og eins gott að bæta úr því.
Þessa stundina er ég að slást ( óbeint) við að koma drengjunum uppí rúm. Hvað er þetta eiginlega með þessi börn??? ARRRGGG þau eru dauðþreytt fyrri hluta kvölds en þegar kemur að því að fara uppí rúm er eins og þau fá ofurkrafta eru bara ekkert þreytt. Alveg ferlegt og ég náttúrlega þessi líka leiðinlega mamma sem stend mig vest af öllum í heiminum. Skilja bara ekkert í því að fá ekki að vaka eins og það sé gamlárskvöld. OO nú jæja, best að bíta á jaxlinn sem flutti í síðustu tannlækna heimsókn og vera eins blíð og engill og sigra í þessari lotu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 15:35
Bjartur dagur
Ég hef verið dugleg í dag. Búin að gera ýmislegt í setrinu sem kemur öllum mínum netkellum vonandi á óvart á morgun. Það er alveg yndislegt að vera í setrinu og ekki laust við að saumafílingurinn fari á yfirflippi.
Annars er sól og fallegt veður. Strákarnir þokkalegir og njóta sín vel í tölvuleik en það er vetrarfrí í skólanum og enginn skóli þessa vikuna. Svo er það fótbolti á eftir hjá þeim.
Maggi minn var að keppa í gærkvöldi og auðvitað sigraði Stjarnan. Til hamingju elskan.
En það styttist í juróvision. Spennandi. Vona að Eiríkur Hauks verði fyrir valinu en er ansi hrædd um að unga fólkið ( nei nei ég er sko ekki gömul ) velji lagið Tryllir mig. Jú jú það er ágætis lag en Eiríkur er samt betri. Mér fannst líka æðislegt að fara í útsendinguna ... I love it !
Já og svona fyrir ykkur sem lesið þetta og eruð á móti júróvision vil ég segja. Þetta er skemmti dagskrá. Enginn drepinn, ekkert blóð. Fullt af nýju fólki í tónlistinni sem kemur sér á framfæri og svfrv.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2007 | 22:14
Blogg og ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)