Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Engin lognmolla hér. !!

Ég fór á SHA (Sjúkrahús Akraness) fyrir viku síðan og var í tvo daga. Rosalega gott að vera þarna. Frábært starfsfólk og mér hreinlega leið eins og drottningu. DR. Liðmann snérist í kringum mig og sá um að ég fengi allt sem ég þurfti. Ég var svo heppin að ein netkellan á heima á Akranesi og kom í heimsókn og það var sko frábært :) Mér líður betur en á enn töluvert langt í land. Kannski ég sé enn að synda milli Akraness og Garðabæjar Wink en þetta hefst á endanum. Mikill munur að geta beygt fótinn og fara út í göngutúr sem ég geri núna daglega. Hinir liðirnir eru nú svosem að lagast en..... já ég veit þetta kemur allt. Og nú er orkan öll að lagast.

Og já bara svo það sé á hreinu þá er starfsfólkið á SHA alveg frábært og það var semsagt gott að vera á SHA :)

En Dr Bækl hringdi og oboy oboy, hnéð á handboltakappanum mínum er heldur betur í hassi, þegar Dr hafði lesið upp krössbönd í klessu og báða liðþófa og ..... þá sagði ég "heyrðu eigum við ekki bara að ræða þetta þegar við hittumst". Aðgerðir framundan hjá honum.

En piltarnir mínir vilja nú vera alveg vissir um að ég hafi nóg að gera og tvíburarnir fóru í fótbolta eins og þeir reyndar gera flesta daga. Við hjónin ákváðum að skreppa í búð en kíkja á þá fyrst. Þegar við nálgumst Sjálandsskólavöllinn hringdi GSM minn. Á hinum endanum var grátandi piltur sem hafði slasast. Við náðum í hann og ókum heim. Hmm.... ég var viss um að þetta væri svona slysó ferð. Og eftir að verkjalyfin höfðu náð yfir og piltur hafði róast var lagt í hann. Ójú hann var brotinn. Hann hafði semsagt verið tæklaður illa og lent á öxl og var viðbeinsbrotinn. Beinið alveg í sundur og myndaði þetta líka fína V. Einhver sérfræðingur stóð hjá og sagði að það væri sko engin ástæða til að koma í endurkomu. Og þar sem ég er nú ekki að heimsækja slysó í fyrsta sinn þá gat ég sko svarað. Heyrðu góði, hvaða speedyconsales vesen er þetta hér, maður verður að klippa gips og fleira sjálfur sem og taka ákvörðun um að bein hafi gróið eðlilega. Ég bara sætti mig ekki við svona afgreiðslu, drengurinn kemur í endurkomu og hananú !. Hjúkka stóð hjá og hló. Hún lenti síðan í vandræðum með að fá einhvern til að setja pilt í fatla og bauð ég fram krafta mína enda vel vön. Já og þetta var önnur ferðin á slysó í þessum mánuði og sitthvor pilturinn.

Svo var saumaklúbbur sl föstudagskvöld. Alveg brilljant skemmtilegur enda sagðar margar skemmtilegar sögur af MÉR Tounge og það af mér.

 


Síðustu fréttir

Á sunnudegi fyrir rúmri viku hringdi tengdadóttirinn í mig og sagði mér að sonurinn væri á leið í sjúkrabíl á slysó. Mér brá akkúrat ekkert ! Hún hefði alveg eins getað sagt mér að hann væri að kaupa súrmjólk Tounge. En ég vissi að piltur væri í Mýrinni að keppa. Semsagt, hraðaupplaup eitt æsi spennandi, minn maður nær að skora, skellur í gólfið og búmm. Hnéð, það vinstra í þetta skiptið ákvað að skipta sér, senda helminginn til hægri og helminginn til vinstri. Frown 

Hann fór því á slysó. Eftir símtal við Miss Bjútí, skellti ég á mig varalit og brunaði á slysó. í afgreiðslunni voru 4 stk starfsmenn sem vissu ekki neitt í sinn haus. Ég sló því á þráðinn til Miss Bjútí sem kom og opnaði fyrir mér svo ég átti greiða leið um ganga slysó. Fann minn pilt sem bar sig þokkalega. Hann fór síðan í myndatöku og loks kom niðurstaða. Æ-i hann er nú ekki brotinn og þetta er eitthvað svona bæklunarlækninsdæmi. Bara farðu heim. Drengurinn var stokkbólginn og hefði átt að fá bólgueyðandi auk þess verkjalyf en nei, enginn lyfseðill í boði.

Ég tók málin í mínar hendur og hafði samband við DR. Bækl í gegnum tölvupóst enda þessi frægi góði dr einn af outlook kontöktum mínum eftir að hægra hné piltsins fór í keppni hér um árið. Það var þá slitið krossband.

Við hittum Dr. Bækl sl mánudag og er piltur á leið í segulómun nk mánudag en Dr. telur að hér sé krossband slitið. Andsk.... og sumarið á næsta leiti. Jæja,  þá er bara að taka á því. Ekki satt?

Strákarnir í handboltanum uppnefndu kauða, DR House..... góður...

Svo er það ég....

Ég hringdi í Dr. Liðmann sl mánudag, eftir sterakúrinn sem gekk ekki alveg nógu vel. Og svo fór ég til hans í gær. Dr. Liðmann hringdi svo áðan og nú skal frúin á sjúkrahús. Og nú skal hella mig fulla beint í æð. Ég er sko rík að eiga Dr. Liðmann að. Búin að setja saumadótið niður og er því tilbúin Grin

Nú svo eru pabbi og mamma að flytja svo það er margt að gerast á þeim bæ.

En nóg í bili.... farin að sauma.


Úthlutun.

Oftast er gaman að fá eitthvað úthlutað. Oftast er úthlutunin eitthvað gott eða eitthvað sem gerir manni gott.

Ég fékk úthlutaða liðagigt fyrir nokkrum árum. Ok, þá er bara að taka á því og vera ekki með væl og vol. Ég sá fyrir mér að ég yrði svona um 70 ára þegar leiðindin mundu skella á. Ég tæki bara inn mín lyf og þá væri þetta allt í lagi. En ég er náttúrlega alltaf svo bjartsýn. Mér var góðfúslega bent á að ég væri að eldast. Hm ég að eldast ! Halló ég er bara um 30 ára..... eða....hvað... nei eitthvað aðeins eldri en ok má ég samt ekki hlaupa niður stiga og fara í fótbolta. Ja sko.. ekki alveg gott fyrir liðagigtina. úff .... er það nú... ég þrjóskari en andskotinn ekki tilbúin að sætta mig við þetta. Enda áttu lyfin að bjarga mér til sjötugt!

En nei, ég er víst ekki 30 ára og lyfin gera gagn en..... Það sem hefur verið að angra mig er ekkert annað en liðagigt, mín úthlutun. Lyfjaskammturinn stækkaði og ég er að átta mig á aldrinum. Ég ætla samt að verða 130 ára í fullu fjöri er sko alveg ákveðin í því. Það hryggir mig samt þessa dagana að vinstri fóturinn er enn pínu máttlaus og hnéð vill ekki beygja. Hvort okkar er svo þrjóskara ég eða hnéð? Veit ekki, það á eftir að koma í ljós.

En ok, takk fyrir úthlutunina, þú sem öllu ræður. Ég ætla bara að læra að lifa með þessu á þennan mátann eins og hinn. Það kann að þýða margar beytingar fyrir mig en ég ætla samt að sauma og gera allt sem mér dettur í hug nema er vera skyldi að hlaupa niður stiga. En fótbolta..... ja sko ég er búin að prófa að sparka með vinstri og það er sárt !


Dásamlegur miðvikudagur

Hér er eins og venjulega frábært veður. Sólin skellir geyslum sínum á sléttan sjóin og það er gaman að horfa út. Svanirnir eru mættir í fjörunna og vilja fá eitthvað að eta.

Ég hitti Dr. Liðmann í gær. Hann er alveg frábær, einn besti læknir sem ég þekki. Gef honum 100000% meðmæli. Hann setti mig á yfirmátasúperbrilljant lyfjakúr og í morgun var ég örlítið skárri enda hafði ég sofið eins og engill í nótt. Hraut ábyggilega mikið og eins gott að loftið er fast Halo 

Ég hætti því í sjúkraþjálfun í bili og sit og sauma og slappa af. Hef reyndar ekki gert annað sl mánuð. En mér er pínu létt og það er gott.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband