26.12.2008 | 12:29
Gleðileg jól
Annar dagur jóla er í dag ég þurfti að kíkja á dagatalið til að ganga úr skugga um að í dag er föstudagur.
Við hér bara búin að liggja í leti horfa á bíómyndir, spjalla og slappa af. Í dag er svo veisla hjá mömmu og pabba og við verðum 16 stk. Gaman að hittast svona. Og núna í fyrsta sinn öll saman í nýju íbúðinni þeirra.
Ég er semsagt komin á fætur en hjásvæfillinn hrýtur ógurlega hann hefur bara gott af því verður svona "sléttari" á eftir
Óska ykkur gleðilegrar hátíðar og vonandi hafið þið það sem best. Ég ætla að reyna að sauma nokkur spor núna en ég hef bara ekkert getað saumað lengi.
Athugasemdir
gleðileg jól og hafðu það gott um áramótin og jólakveðjur til mömmu þinnar og pabba
Laugheiður Gunnarsdóttir, 26.12.2008 kl. 23:38
Kærar jólarsetog nýárskveðjur.
Unnur Guðrún , 2.1.2009 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.