12.3.2009 | 20:25
Gaddavír í hálsi
Ég get ekkert sungið á köflum vart stunið upp orði ... ég er með gaddavír í hálsinum. Úff helv... er þetta vont og svo hósta ég eins og stórreykingarkona. Djöv... ég pantaði þetta ekki. Pöntunin mín kom ekki það er sko greinilegt.
Hef verið í bómull í dag. Sitið og saumað og horft á sjóinn. Talað við fuglana og verið í samningaviðræðum við sjálfa mig. Haft vinningin en stundum tapað
Er að spá í að fara að skrifa skáldsögu með ævisöguívafi. Eiginmaðurinn skoraði á mig
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.