Leita í fréttum mbl.is

Áfram um gosið

Við vorum að ræða saman um gosið ég og pabbi. Hann er náttúrlega með allt á hreinu. Gosið hófst um kl 1:40 um nóttina og hafði hann ekkert sofið enda skalf allt og nötraði heima hjá okkur. Fyrr um kvöldið höfðu verið jarðskjátftakippir. Hann vakt mig rétt fyrir kl 2.00 og við vorum farin, við krakkarnir ásamt Sigga afa út úr húsinu þá strax. Beint á Faxó til Siggu ömmu. Einar afi var skiptstjóri á Lóðsinum og fór ekkert annað en í sitt skip þar sem hann var nánast til gosloka.

 

 grænahlíð22Hér er húsið okkar Grænahlíð 22. Þarna átti maður margar góðar stundir.

 

 

Þegar T & K komu heim úr skólanum í dag sögðu þeir að gosið hefði verið til umræðu í skólanum og verði svo á morgun. Þeir eru náttúrlega í góðri aðstöðu til að segja sögur frá gosinu og víst er að þeir munu njóta sín

 

 


23 janúar

35 ár í  dag frá gosinu. Margs er að minnast það er á hreinu.

Þegar ég lít tilbaka þá man ég þetta eins og það hafi gerst í gær. Þegar pabbi vakti mig, klæddi ég mig og fór fram í eldhús og sagðist engan vegin vilja hafragraut í morgunmat GetLost. Engan fékk ég morgunverðin enda gos í næsta nágrenni.  Ég var dugleg fyrstu árin eftir gos að heimsækja Eyjarnar en eftir að afi og amma dóu geri ég lítið að því. Þó fór ég til Eyja í sumar í dagsferð með karlinn, strákana, tengdadóttir og foreldra og hafði gama af. Veit ekkert hvenær ég fer næst.

En merkilegt nokk í mínum augum hefur þessi dagur verið frelsisdagur hjá mér. Frelsi til að velja hvað sem er hvar sem er. Þótt Eyjarnar séu fallegar og allt það þá tel ég að mér hafi verið betur borgið í lífinu að búa á fasta landinu.

 - - - - -

 

 


Jæja.......

... er ekki best að blogga svolítið.

Mikið búið að vera að gera. Svo er líka mikið að gera í pólítíkinni svo ég hef verið upptekin !

Hvað finnst manni um þessi pólítísku tíðinni. Maður verður að hafa sig alla við að muna hverjir eru í borgarstjórn og hver er stjórinn. Hmm eins gott að mitt lið hér í bæ standi sig og ekkert svona vesen. En annars alveg ótrúlegt með þessi biðlaun. Hvað með okkur almúan ekki fáum við biðlaun. Okkur er í mörgum tilfellum bara dompað eins og hverju örðu drasli og fáum ekki einu sinni kaffibolla ! En það er allt önnur saga.

Það var svo mikið að gera í gær og í dag að mér finnst hreinlega að það sé komin fimmtudagur. Úff svo er bara miðvikudagur Á MORGUN ! jæja það er líka mikið að gera á morgun. Viðtöl og mikið fjör. Það hefur færst fjör í viðtala leikinn og nú er boðið í mann. Hmm spennó að sjá hvar þetta endar Wink 

Svo er saumaklúbbur á fimmtudaginn og þá verður sko fjör. Nýjar konur að koma svo ég má passa að missa mig ekki í bröndurunum. 

En ég  er á fullu að klára þessa hérna LLstada20jan en þetta á að verða afmælisgjöf handa konu sem mér þykir vænt um. En hún á stórafmæli eftir nokkrar vikur. Já já ég verð búin ekki spurning því klappliðið ( www.netkellur.is) klappar mig upp !

 


Laugardagur

Það var saumaklúbbur í gærkvöldi og alveg ofaslega gaman. Vel mætt og mikið stuð. Núna erum við að undirbúa bústaðahelgi og þá verður stuð. Alltaf smá leyndó fyrir svona ferðir til að koma á óvart og gera spennandi. Núna verðum við 11 saman í 100 fm bústað. Hér eru allir við hestaheilsu og strákarnir búnir að ná sér eftir Gullfoss og Geysir og Hveravelli. Svo framundan eru bara rólegheit eða þannig. Í kvöld ætla ég að sauma alveg helling enda búin að taka til :)

Gullfoss og Geysir !

Já þeir eru flottir svo framalega þeir komi ekki uppúr eða niður manninum !

T er með Gullfoss og Geysir, Gullfoss rann ört í gær og um það leiti sem ég heimsótti daumalandið kom Geysir og geystist áfram af fullum krafti. Skildi eftir sig XXX hér og þar og því var íbúðin skúruð um miðja nótt! Alveg hreint yndislegt líf þetta og vel að merkja þetta var nótt númer 2. Svo gólfin hér eru örugglega hrein Blush Merkilegt annars hvað  svona gerist oft á nóttunni. Hvað veldur? Það að foreldrar eru sofandi ? Eða kannski að blessuð börnin séu afslöppuð? Eða bara afþvíbara ?

Var sutt í vinnu í dag vegna þessa og sat því og saumaði á milli þess sem ég átti ágætis samtöl við Candy þeas þvottavélina.

Að öðru leiti er tíðindalaust hér í Sjálandinu góða og jólasveinarnir farnir úr hillunum hjá mér allir einn og hundrað. Mér finnst stofan nakin Woundering en það koma fljótt önnur jól og víst best að fara að undirbúa þau LoL


Sannarlega mánudagur til mæðu.

Það er langt síðan mánudagur ja eða nokkur dagur hefur birtst mér svona leiðinlegur eins og dagurinn í dag. Allt á afturfótunum og það örugglega skeifulausum. En öll él birta upp um síðir. Eða ég tel mér trú um það.

Ég ætla að smella á mig ipodnum og sauma.

 

Hugsaðu eins og sigurvegari - þá sigrar þú !

Æ-i kannski ég bara hringi í Höllu ----- maður hefur jú valmöguleika að hringja ( eins og í spurningarkeppnum )


2007 búið !

Ósköp er ég lélegur bloggari...

En árið 2007 er búið. Skýtið ár liðið. Árið var í heild sinni frekar erfitt og á stundum óþolandi. En þetta tókst þó þeas að klára það. Það kemur ekki tilbaka. Hinsvegar er ég reynslunni ríkari. Ég áorkaði margt gott og er bara ánægð með það.

Það sem stendur uppúr eftir árið.....skólinn, heimsóknir gamalla vinkvenna,(nei þær eru ekki af eldri kynslóðinni) og mjög skemmtileg Londonferð og fullt af smáum atburðum sem gaman er að hugsa um.

En framundan er 2008. Og ég veit að þetta verður frábært ár. Það byrjar bara vel.

Í dag og í gær hef ég verið að sauma stóra mynd og ætla að gefa mér þetta ár í það minnsta að sauma hana.

Á morgun byrja skólarnir hér þannig að T og K og M og H fara öll í skólann og ég í vinnuna.

 

 


Köld kella ég !

Nú er ég rosa happy .. jólaljósin að koma upp hjá fólki og það fíla ég í botn Happy og ég er auðvitað búin að setja ljósakransinn út í glugga og búin að setja ljósleiðarajólarósina mína upp fyrir löngu !

Alltaf með kerti og rómatík ..

En annars er ég köld kella. Það gekk svo yfir mig í vinnunni að ég bara sagði upp ! Ójá og bara ætla að leyfa hlutunum að koma til mín. Ég hef nefnilega verið að lesa Leyndarmálið (Secret) og líka horfa á myndina og ég er svo jákvæð. Gæti ekki verið betri.

Framundan er skemmtilegasti tími ársins.Desember er minn uppáhalds mánuður. Það byrjar prógram strax 1 des !

En svo er líka lokakaflinn hafin í skólanum og síðasta prófið þann 17 des.

Ég hringdi annars í gamla góða vinkonu, æskuvinkonu. Svo gaman að heyra í henni. Var búin að stefna á þetta viku eftir viku og loksins lét ég verða af því. Hún er líka búin að vera á leiðinni til mín í kaffi í l a n g a n tíma og ætlar að kíkja í kaffi á sunnudaginn.

 

En á laugardag er það Skordals-systra-hópurinn sem kemur saman að læra.


Íslenska...ekkert mál. !

Merkilegt fyrirbæri þessi Íslenska ! Dagur Íslenskrar tungu liðinn og margir fengu góð verðlaun. Gott og blessað það.

En afhverju í ósköpunum getur fólk og fyrirtæki ekki bara verið með íslensk nöfn ? Þetta er náttúrlega alveg til skammar og mér finnst að það ætti að setja fótinn fyrir fyrirtæki sem geta ekki nota okkar tungumál í heitum sínum.

Við erum svo fljót að stökkva til, hlaupa á eftir hinum og þessu verslunarkeðjum um allan heim og drögum þau á asnaeyrunum hingað.

Og svo er annað sem brennur á mér.... Hvað er Eiður Smári að gera? Ég sem er svo laus við forvitni um  líf fræga fólksins er gjörsamlega að fara á límingunum Sick..... sem sagt að deyja úr forvitni.

En ég reyni að bíða rosalega þ o l i n m ó ð !


Sunnudagur selstúlkurnnar....

Það hefur auðvitað verið nóg að gera undanfarið. Aldrei lognmolla hér á bæ.

Í dag var svokallaður ..rennerísgestadagur. Frá hádegi fram á kvöldmat. Gaman þegar fólki kemur í heimsókn og situr og spjallar um daginn og veginn.

Í gær var margt að gera og dagurinn eiginlega bara rann mér úr greipum þótt ég hefði áorkað margt.

En í öllu þessu ákvað ég að slá öllu uppí kæruleysi og sauma í stað þess að stitja og lesa Blush. Æi það var svo gott svo notarlegt. Bara láta hugann reika og sauma. Eftir liggja ýmis skemmtilega verkefni á borðinu og ég er sátt.

Ég var ekki í vinnu sl föstudag þar sem astmaskrattinn, eða asnin í mér eins og ég kallan, brá fyrir mig fæti. Ég saumaði því líka á föstudaginn LoL og er því í alveg rosa stuði fyrir næstu viku. Þetta er svona eins og minn Búddismi Tounge.

Ég veit að næsta vika verður æði spennandi. Fyrst ber að nefna að ég hef boðað til fundar í skólanum með Sjónarhólskonu og DR. SJH. Police er ekki búin að segja orð um það í skólanum og mun því verða þvílíkt undirbúin og skora mörg stórfengleg mörk !

Svo eru það verkefnin í mínum skóla sem munu taka völdin á morgun og við Systurnar Skordal fara að vinna í þeim en við áttum frí frá hvor annari þessa helgina. Við munum að sjálfsögðu slá í gegn enda afbraðgs konur og afskaplega vel gefnar !

Sigurgeir minn er búin að setja upp nýja spjallrás á netkellum svo þar verður margt að kanna og læra á fyrir mig sem og kellurnar mínar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband