24.9.2007 | 20:28
Jæja......
Þá er nú skriflega prófið búið. Var frekar stutt átti að vera 2 tíma en ég lauk því á tæpum klukkutíma. Var ekki fyrst að klára. En ég held þetta hafi bara gengið vel.´
Nú get ég slappað af í kvöld og saumað en næsti áfangi í skólanum byrjar á föstudag og þá eru það skattskilin. Ójá ég held þau verði bara skemmtileg.
Þessa dagana er ég að teikna upp skipulag saumaklúbbsins fyrir árið 2008 og líka bústaðaferð í byrjun febrúar og sennilega útlandaferð í október 2008. Jájá það verður að skipuleggja þetta snemma svo allt náist á réttum tíma.
Annars var helgin bara góð. Fyrir utan lestur og þh. Sigurgeir skrapp í geymsluna og tók smá til. Datt reyndar um sjálfan sig á eitthvað drasl en slasaðist ekki mikið enda ekki hár maður fallið semsagt lágt. Og draslið varð ekki að meira drasli en það var fyrir .
Tók ákvörðun í dag sem gæti breytt miklu fyrir mig og mitt fólk. Sjáum til hvað gerist.
Athugasemdir
í hvaða námi ertu kelli mín alltaf jafn mikið að gera.
Laugheiður Gunnarsdóttir, 30.9.2007 kl. 17:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.