22.1.2008 | 20:44
Jæja.......
... er ekki best að blogga svolítið.
Mikið búið að vera að gera. Svo er líka mikið að gera í pólítíkinni svo ég hef verið upptekin !
Hvað finnst manni um þessi pólítísku tíðinni. Maður verður að hafa sig alla við að muna hverjir eru í borgarstjórn og hver er stjórinn. Hmm eins gott að mitt lið hér í bæ standi sig og ekkert svona vesen. En annars alveg ótrúlegt með þessi biðlaun. Hvað með okkur almúan ekki fáum við biðlaun. Okkur er í mörgum tilfellum bara dompað eins og hverju örðu drasli og fáum ekki einu sinni kaffibolla ! En það er allt önnur saga.
Það var svo mikið að gera í gær og í dag að mér finnst hreinlega að það sé komin fimmtudagur. Úff svo er bara miðvikudagur Á MORGUN ! jæja það er líka mikið að gera á morgun. Viðtöl og mikið fjör. Það hefur færst fjör í viðtala leikinn og nú er boðið í mann. Hmm spennó að sjá hvar þetta endar
Svo er saumaklúbbur á fimmtudaginn og þá verður sko fjör. Nýjar konur að koma svo ég má passa að missa mig ekki í bröndurunum.
En ég er á fullu að klára þessa hérna en þetta á að verða afmælisgjöf handa konu sem mér þykir vænt um. En hún á stórafmæli eftir nokkrar vikur. Já já ég verð búin ekki spurning því klappliðið ( www.netkellur.is) klappar mig upp !
Athugasemdir
Yes! Fann þig, vinkona. Kompjúterinn verið með fílu út í mig, og ég ekki getað elt ip-tölurnar nema endrum og eins! Er greinilega í góðum gír við mig þessa dagana. Flott síða, og gaman að heyra frá þér. Eigum við að gerast blogg-vinir....hmmmm. Erum nú þegar bernskuvinkonur, æskuvinkonur, gelgjuvinkonur, fullorðins-kaffivinkonur....þetta er kannski að bera í bakkafullan lækinn?? Nah, sei sei nei, aldrei of mikið af því góða!
Frábær mynd sem þú ert að listaverkast með í höndunum.
kveðja Sigga.
Sigríður Sigurðardóttir, 22.1.2008 kl. 22:12
Já vinir fram yfir allt ekki spurning.
Hmm kaffi hvað..... ja sko ég hef 330 daga ca til að mæta hjá þér í kaffi. Það verður að gerast fyrir jólin þeas næstu jól
Kristín Magnúsdóttir, 22.1.2008 kl. 22:29
Heyrðu, fer bara að hella upp á...330 dagar enga stund að fljúga hjá, miðað við hvað 35 árin frá gosi hafa liðið hratt!
En fékk þessa fínu kaffivél í jólagjöf frá tengdó, svo......!
Sigríður Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 21:23
Ég verð bara að koma sem fyrst úr því þú ert komin með nýja kaffivél. Ég þarf að taka hana út .
Kristín Magnúsdóttir, 23.1.2008 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.