1.5.2008 | 21:09
Sól og blíða
Er ekki komin tími á smá blogg ? Held það.
Ég hef bara ekki verið í gírnum undanfarið. Eftir þessa fínu reisu á SHA og fáeina góða daga þar á eftir fór bara allt í sama horfið aftur. Dr. Liðmann þurfti að leggjast undir feld. Hann hringdi í dag og nú á ég vísa ferðir á 8 vika fresti á SHA. Nei það er sko ekki leiðinlegt.Ég semsagt fæ góðan mjöður beint í æð og verð sjálfsagt fín á eftir. Ég bíð sko spennt eftir fyrstu ferðinni sem verður innan fárra daga.
Annars var ég á svölunum í dag. Rosalega gott veður, skrilljónstiga svalarhiti og notarlegt að fá sé kaffi úti og lesa bók.
Heilsufar piltana er í góðu lagi og framundan eru ferðir annars vegar á endurkomu á slysó og svo að funda með Dr Bækl. Gríðarlega spennandi.
Ég átti að byrja að vinna sl þriðjudag en komst ekki þar sem liðir voru í verkfalli en ákvað að drífa mig í fyrramálið. Spennandi að byrja á nýjum stað eftir þessa veikindahrinu.
Athugasemdir
gangi þér vel
Laugheiður Gunnarsdóttir, 2.5.2008 kl. 15:46
Farðu vel með þig stelpa
Unnur Guðrún , 2.5.2008 kl. 16:53
Er búferlaflutningur upp á Akranes í spilunum?
Láttu þér batna vinkona, gott ef hann Guðmundur Eyjólfsson afi minn hefur ekki verið að senda þér orku að handan. Hann jú veit hvað er að vera með bilaða liði í ganglimum.
Knús á þig.
Sigríður Sigurðardóttir, 2.5.2008 kl. 22:15
Já takk allar, ég lofa að fara vel með mig.
Nei ég flyt ekki á Akranes ekkert mál að skella sér í smá bíltúr og fá lækningu í leiðinni.
Kristín Magnúsdóttir, 3.5.2008 kl. 12:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.