Leita í fréttum mbl.is

Araba afturbata p........

Það er nú alveg ótrúlegt hvað mér dettur í hug og framkvæmi. Svolítið drama alltaf en ók þegar ákvörðun er tekin á er bara að skutla sér út í laugina og taka dífu.FootinMouth Ég semsagt ákvað að segja upp vinnunni og vera bara ekkert að velta þessu fyrir mér meir. Bara ekki mitt skip það er á hreinu. Og svona snillingur eins og ég er fær annað skip ekki spurning.

Annars var skemmtilegt klúbbkvöld hjá okkur í vikunni og kom ein ný kona. Sú var ekki lengi að setja saman nokkur kjarngóð orð um okkur:

Ropað, sötrað, rekið við,

reyndar saumað líka.

Þar var úrvals englalið

og afturbatapíka
.

Ójá þetta var heljarinnar kvöld. Og af því að það er alltaf verið að gera grín af minni juróvison ást þá kom þessi frá annari góðri konu

Eurovision teljum takt,
taktvissar í línudansi,
dettur inní Dressmann act
dama ein með eðalglansi.

Fílum allt með fílarana,
förum oft í Londontúr,
á þar leikum Arabana
er okkur vilja í kvennabúr

Það sem ég segi þessar dömur eru æði.

Framundan er spennandi vika sem endar svo með sumarbústaða ferð hjá okkur netkellum. Rosalega hlakka ég til. Þessar ferðir með þeim eru æði.

Nánar um það síðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband