Leita í fréttum mbl.is

2.apríl 2007

Þá er ég búin að fara til London. Skemmti mér konunglega þrátt fyrir að hafa ekki hitt Betu. Vonaðist eftir síðdegis tei með henni en því miður var hún upptekin. Koma tímar koma ráð.Halo

Mér tókst að detta svo rækilega út úr sendiferðaleigubíl. Það var helvíti vont að skella á bakinu og er ég enn með verki. En þetta var samt virkilega smart hjá mér. Svona Dressman dettingur. Semsagt rólega dottið. Stelpurnar (vorum 7 saman) urðu dauðhræddar og Jasmin, indverski bílstjórinn okkar kom hlaupandi. En nei ég viðurkenni sko ekki að hafa meitt mig !

Svo var okkur líka rænt já okkur öllum 7 kvennsunum. Alveg ótrúlegt. En við vorum semsagt að bíða eftir Jasmin og það kom svartu bíll og bílstjórinn kom á móti mér og jú hann vissi hvert við vorum að fara og svo frv. Við skutluðumst í bílinn og á miðri leið hringir Jasmin og spyr hvar við séum. ok ég náttúrlega útskýrði það. Taldi að þetta væri annar bílstjóri frá fyrirtækinu. En nei aldreilis ekki. Þeir ræddu svo saman bílstjórarnir og hótuðu hvor öðrum lögreglunni. En allt reddaðist þetta að lokum. Og nú skemmtum við okkur yfir þessu og þökkum fyrir að hafa ekki lent í kvennabúri í austurlöndum.Whistling

Fékk ágætisveður  í London og mikið eru þau komin langt í vorið þarna úti. Uss hér var svo snjóslikja yfir öllu þegar ég kom heim. En þetta kemur allt, sko vorið ....

Þegar heim kom var nóg að gera. Þvottahúsið var eins og hér byggju 100 manns og það tók tíma að vinna niður úr körfunum. Já þetta á að vera fleirtala.

S.l laugardag fylgdist ég spennt með álvers kosningunum. Gat ekki ákveðið mig. Með eða á móti? Hefði kosið að meiri munur væri þarna á milli en aðeins 88 atkvæða munur. Víst er að þótt kosningarnar séu búnar er margt enn óskýrt. Hvaða áhrif mun þetta hafa á Hafnarfjörð? ja frá a til ö. Er alveg viss um að sum þessara áhrifa munu koma mörgum spánskt fyrir sjónir Wink

En framundan eru páskar. Frí og afslöppun. Ég ætla mér stóra hluti í útsaumnum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband