Leita í fréttum mbl.is

Köld kella ég !

Nú er ég rosa happy .. jólaljósin að koma upp hjá fólki og það fíla ég í botn Happy og ég er auðvitað búin að setja ljósakransinn út í glugga og búin að setja ljósleiðarajólarósina mína upp fyrir löngu !

Alltaf með kerti og rómatík ..

En annars er ég köld kella. Það gekk svo yfir mig í vinnunni að ég bara sagði upp ! Ójá og bara ætla að leyfa hlutunum að koma til mín. Ég hef nefnilega verið að lesa Leyndarmálið (Secret) og líka horfa á myndina og ég er svo jákvæð. Gæti ekki verið betri.

Framundan er skemmtilegasti tími ársins.Desember er minn uppáhalds mánuður. Það byrjar prógram strax 1 des !

En svo er líka lokakaflinn hafin í skólanum og síðasta prófið þann 17 des.

Ég hringdi annars í gamla góða vinkonu, æskuvinkonu. Svo gaman að heyra í henni. Var búin að stefna á þetta viku eftir viku og loksins lét ég verða af því. Hún er líka búin að vera á leiðinni til mín í kaffi í l a n g a n tíma og ætlar að kíkja í kaffi á sunnudaginn.

 

En á laugardag er það Skordals-systra-hópurinn sem kemur saman að læra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnur Guðrún

hæ, ég er einnig að lesa þessa bók en ég hef ekki séð myndina. Svo nú verðum við meistarar hugsana okkar bráðum...........eða hvað ......já já því ekki það. Kannski erum við það nú þegar.

Unnur Guðrún , 28.11.2007 kl. 16:10

2 identicon

Þú átt örugglega eftir að fá eitthvað flott starf. Hlakka til að sjá þig á laugardaginn

Steinunn Rósa Einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 17:17

3 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

Laugheiður Gunnarsdóttir, 4.12.2007 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband