Leita í fréttum mbl.is

Sunnudagur

Ég átti bara góða viku. Við saumaklúbbskellur fórum í boð hjá Kvenfélagi og áttum góða stund með þeim. Nei nei ég fer ekki að ganga í kvenfélag það er bara ekki nógu krassandi fyrir mig ég sé það allavega ekki.

Ég þrammaði svo í Smáralind á miðvikudagin fór samt ekki stafnana á milli en ok ég tók svona hluta af báðum hæðum. Fór með einni góðri vinkonu á kaffihús. Ágætiskaffi en ekki nógu heitt og ekki nógu sterkt en það mátti drekka það Wink

Sl föstudag var svo saumaklúbbur og var skemmtilegt eins og alltaf. Áttum góðar samræður um leggins og árshátíðarkjóla. Ég er þeirrar skoðunar að þetta hreinlega passi ekki saman ! Sumir sýndu undirfötin sín við háværan hlátur. Já já sálfsagt getur sé einhver til um hver sýndi hvað LoL

Í dag er bara leti held ég sé að fá helv.... pest og það hentar ekki vel mínum liðum. En ég bara teikna upp mynstur og syng með Ipodnum enda nýlega búin að slá í gegn á tónleikum fyrir fólkið mitt og það hreinlega án þess að gera mér grein fyrir því....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnur Guðrún

Gaman væri að vera fluga á vegg í þessum saumaklúppi þínum

kær kveðj frá Noregi

Unnur Guðrún , 8.3.2009 kl. 18:59

2 Smámynd: Kristín Magnúsdóttir

Já USS það veit ég að þér þætti mjög mjög skemmtilegt.

Kristín Magnúsdóttir, 8.3.2009 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband