Leita í fréttum mbl.is

Enn eitt vígið fallið.

Hér sit ég plástruð á þeirri vinstri. Fór að hitta Dr. Liðmann í dag. Hann tók á móti mér með bros á vör eins og venjulega. Og nú var það upp með nálarnar ! Tvær sprautur í liðina á vinstri  vísifingri. Og já þetta er VONT og svo voru nokkrar sprautur í hnésbótina á vinstri fæti. Það  var svo sem ekkert vont. En mikið er ég fegin að þetta er búið.

Gaf honum smá gjöf og hann var bara ánægður.

Nú er ég komin yfir þennan kafla. Er reyndar hálfgerður asni núna. Þurfti að hjálpa mér að borða og á mjög erfitt með að pikka á tölvuna en hvað gerir maður ekki !!!!

Nú þarf ég að vera stillt í dag og á morgun. Spurning hvort það tekst Halo .. ja ég held það.

 

Fékk jólagjöfina mína í gær frá strákunum, Sigurgeir og tengdadótturinni. Og ég fýla gjöfina í tætlur. Það þurfti að koma með hana frá búðinni í sendibíl og tvo menn til að ber'nna  inna. Dásamlegt .

Þetta verður ekki sett í umbúðir en fá má sýnishorn hér:

www.innlit.is/images/verdmidar/rafmlyftist.asp                Heart

Viltu fá að prófa ? LoL

 

 

 

 


Hvert fór vikan ?

Uss það er bara komin ný vika "gamla" vikna leið hratt og var skemmtileg á köflum.

Fór út að borða með netkellunum mínum sl þriðjudag. Jólafundur hjá okkur og pakkaskipti. Mjög skemmtilegt.

Miðvikudagurinn fór svo í tanna. Hmm ekki alveg eins skemmtilegt en þetta tókst og ég kom svo sæt út. Nei ekki láta ykkur detta í hug að ég hafi verið svo dofin og vart getað talað. Nei nei þótt ég hafði verið deyfð var ég ok og gat sko þess vegna rifið kjaft.

Annars leið bara vikan fljótt og var tölvert strembin. Þessi vika verður ögn rólegri svona öðruvísi bókuð.

Er svo annars bara að bíða eftir jólunum. Jólakortin löngu komin í póst og gjafir innpakkaðar og steikin á eftir að fara í ofnin. Joyful svo ég get bara dúllað mér í útsaumi og lesið góðar bækur en það eru sjö bækur á náttborðinu hjá mér..


Búmmmmm....

Alveg er ég ótrúleg, ég meina það sko Blush

Í morgun gerði stjórnarandstaðan í mér, sko vinstri hliðin uppreisn og það gerðist búmmmmmmmmm já með öllum þessum emum. Mér tókst af stakri snilld að "gleyma" vinstri fæti og kræktist hann undir mottuna með þeim afleiðinum að ég small í gólfið. Snérist í fallinu ( nei ég er ekki 2.1o á hæð) datt á hægra hnéð og h-hönd.  Ég lá í gólfinu í einar 15 mínútur, höfuðið fór utaní. Kannski ég verði skýrari hér eftir. Eftir mikið bras komst ég á lappir. Dauðhrædd um að vera hölt á báðum. Uss þá hefði ég gengið um eins og Keisaramörgæs og þá aldrei komist í American Next Top Models.

En ég uppskar marga marbletti og auma liði. Eins og þessir blessuðu liðir mínir væru ekki nógu aumir. En ég verð þó að segja að þessi "dettingur" sló ekki út "dettingin" frá London-mars-2006.

En ég sauma víst ekkert í kvöld.


Helgin að verða búin.

Og það bara býsna góð helgi.

Á föstudagsmorguninn fór ég að heimsækja elstu vinkonu mína. En við kynntumst í kringum 1964 +/- 1 ár. Eins gott að þriðja manneskjan var ekki með okkur því hún hefði aldrei komist að svo mikið kjöftuðum við.

Karlinn minn var  meðvitundarlaus í gær, of mikið í stóru tánna sl föstudag valdur af því. :) Dró hann samt í Bónus í gær og hafði bara gaman af því. Hann gerði ALLT sem ég bað um án umhugsunar en ég ákvað að leyfa honum ekki að keyra bílinn. Og allsekki að anda á mig Cool

Eftir þessi innkaup ákvað ég að splæsa á mig bleikum Ipod nano 8 gb.... æi ég bara varð hinn svo lítill og ég þarf verkjastillandi. Þurfti reyndar að fara bæjarleið eftir honum fyrst og síðast þar sem ég vildi hann bleikan. Já ég kem sífellt á óvart.

Í dag var svo afmælið mitt. Hörkupartý og bara gaman. Max mætti líka og knúsaði frænku sína. Max er semsagt hundur af Pug kyni ............

En ég verð að viðurkenna að skemmtilegast atvik helgarinnar var í gær þegar ég fór að kaupa ipodin. Magnús keyrði mér og Hrefna sat aftur í. Og svo töluðum við á fullu. Ég varð vör við eitthvað duló í einni tönninni og viti menn það hreinlega losnaði ein fyllingin og datt út í heilu ég meina hún molnaði ekkert. !!! já það er sko hægt að kjafta úr sér tannfyllingarnar. En þessi var reyndar eitthvað um 20 ára. Svo nú það ég að komast til tanna í hvelli.

 


Uppfærsla..

Og hvað hefur svo gerst síðan síðast? .... úpps það er bara svo ofsalega mikið.

Ég er búin að fara einar 8 ferðir á SHA frá því seinni partin í apríl og líkar vistin bara vel. Er með "private nurse" og alles og er svona að skríða saman. Tel það mikil forréttindi að geta smurt brauð og skorið ost. Eftir sprautur í hnésbót núna í október tókst mér að klæða mig í sokka og það alveg sjálf. Svei mér þá ef sjálfstæðið er bara ekki mætt í öllu sínu veldi. Minn elskulegi eiginmaður benti mér á að ég væri nú ekki ríki þótt ég væri sjálfstæð.

Nú þegar bankarnir hrundu tók vísifingur á vinstri hönd uppá því að festast krepptur. Já það var víst einhver heimskreppa sem birtist. Og eftir töluvert basl við fingurinn ákvað hann að rétta úr sér og neitar svo að beyja sig. Spruning hvort þetta er einhver spádómur um kreppuna sem við erum í hér.

Magnús og Hrefna trúlofuðu sig. ójá litlu börnin mín gengin út. En þau koma nú reglulega og kíkja í ísskápin og koma með þvott. Bara skemmtilegt. En allt gengur vel hjá þeim.

Og strákarnir mínir já já þeir eru hressir hafa tekið virkan þátt í heimilisstörfum og víst er að þeir verða flottir í framtíðinni sannkallaðir snyrtipinnar.

En nú verð ég að spretta úr spori og sauma...


Orðlaus ?

Nei ég er sko ekki orðlaus þrátt fyrir að hafa ekki bloggað llllleeeennnnngggiiii en fékk smá skot frá einni í gærkvöldi og ætli ég láti ekki gammin geysa..

Sól og sæla

Hér er afbragðs gott veður þessa dagana og virkilega notalegt að sitja á svölunum sauma nokkur spor og lesa til skiptis. Svei mér þá ef ég bara tók ekki smá lit í dag.

Annars er ég líka í boltan. Fékk að líta rauða spjaldið ja eða bleika spjaldið. Ég viðurkenni ég bara varð svo æst. Skil bara ekkert hvar augun á dómaranum voru eða hvers vegna þeir komu ekki helv... tuðrunni í markið. Eiginmaðurinn benti mér á að þeir bara heyrðu ekkert í mér þarna í útlandinu og bað mig að vera stillta ! jú jú ég reyni..

Í gærkvöldi fór ég með saumaklúbbnum út að borða. Rosalega gaman að fara smá út! Og með stelpunum. Við náttúrlega hlóum og skemmtum okkur mjög vel.  Gott veganesti fyrir mig í næstu Akranes ferð sem er á morgun. Dr. Liðmann er erlendis en hann fékk annan Dr til að fylgjast með mér svo allt færi nú vel fram. Hann er æði hann Dr. Liðmann. Svo er ég bara spennt að fara og hlakka til að finna breytinguna sem vonandi kemur fljótt og vel.

Ég náði að klára að sauma Ronaldo og koma honum í innrömmun. Hann er bara ok. Sem og Jack Sparrow. Þarf að taka mynd og smella þeim á netið.

 


Er ekki komin.......

tími á smá blogg ? jú svei mér þá ég held það. Hef ekki verið uppá mitt besta undanfarið og hef reyndar bara aldrei verið svona slæm eins og síðustu 5 daga. Uss hvað þetta er leiðinlegt. Ekkert getað saumað. En þetta er sko vikan mín fer uppá Akranes á fimmtudag og hlakka ógurlega til. Það er engu líkara en að ég sé að fara í skemmtiferð en ekki til að fá hið nýja lyf í æð. En svona er maður nú bara orðin.

Ég er annars rosalega heppin. Þegar maður dettur í svona veikidavesen þá skiptir miklu máli að eiga góða að. Og þar er ég sko rík. Ég á einhvað um skrilljón vinkonur og það er engu líkara en þær hafi sett upp net sín á milli að hafa samband við mig, hringja, sms-a, senda tölvupóst eða heimsækja mig. Og þess vegna leiðist mér aldrei, kann það reyndar ekki það hefur alltaf verið svo mikið að gera hjá mér í gegnum tíðina og því hef ég bara gleymt að læra það Halo

En svo var eurovision vika í síðustu viku og mikið var nú fjörið hjá mér. Græjurnar í botni frá morgni til kvölds. Skemmtileg keppni í ár og mjög mörg sterk og góð lög. Ég var virkilega ánægð með OKKAR fólk. Þau komust auvitað áfram á bleika litnum InLove og stóðu sig með príði.

Öll lögin eru auðvitað á ipodnum mínum og ég hlusta vel og lengi dag hvern. Á mörg uppáhaldslög úr þessari keppni.

En nóg í bili, þarf að fletta útsaumsblöðum þar sem ég get ekki saumað.


Vikan liðin...

jæja þá er þessi vika komin að helgi. Engin ferð á SHA enþá. Æi hvað maður getur stundum verið óþolinmóður að bíða. En þetta hefst allt. Allavega pottþétt í næstu viku ! Bara verður að vera svo. Vonandi þarf þó ekki að fresta Eurovision Smile Því þótt SHA sé frábært hafa þeir ekki heimabíó og svofrv eins og ég. Auk þess væri ég alveg örugglega ekki vinsæl með allt í botni og enginn mætti tala nema ég.

Er annars búin að liggja hér yfir bókhaldi húsfélagins og verð fegin að klára það. Ekkert saumað en mikið hugsað um það. Kannski mér takist að sauma spor um helgina. Þarf að fara að klára Ronaldo og snúa mér að einhverju allt öðru. Leiðinegt að sauma hann þótt hann sé finn fótboltakappi er hann bara ekki í mínu liði !

Góða helgi.


Baráttan við tvíburahúfuna.

Já það er ekki öll vitleysan eins.

Hendurnar á mér hafa verið í algjöru verkfalli, bólgnar og púkó sökum liðagigtarinnar og ég ekkert getað gert. Ekki einu sinni hysjað upp um mig buxurnar án aðstoðar. Það er ferlegt að ganga í gegnum þetta fyrir mig svona sjálfstæða konu sem gerir allt sjálf og getur endalaust haldið áfram. En svo bregðast krosstré sem önnur tré.

Karlinn hefur klætt mig í tvíburahúfuna á morgnanna áður en hann fer til vinnu og ég náð að teikna upp þvílíka tækni með að koma mér í buxur. Eftir morgunlúrinn í morgun ákvað ég að best væri nú að skella sér í sturtu og þvo mér hárið. En helv.... tvíburahúfan hún var til vandræða. Eftir að hafa rembst eins og rjúpan við staurinn í einar 5 mínútur sá ég að þetta hreinlega gengi ekki. Var þá búin að aflaga húfuskömmina nokkuð og þurfti því aðrar 5 mínútur í að laga hana. Gat ómögulega farið í sturtu í henni svo ég bara sleppti því. Klæddi mig og setti upp andlitið og fékk mér svo kaffi. Hugleiddi um stund hvort ég hefði etv slegið Mr Bean út af kortinu með þessari tvíburahúfureynslu. Svei mér þá ég held það.

En svona er að vera með gigt maður þarf greinilega stundum að bíta í það súra epli að einfaldir hlutir verða flóknir. En það má alltaf hlægja að þessu, ekki spurning.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband