Leita í fréttum mbl.is

Febrúar

jæja ég veit það er töluvert síðan ég bloggaði síðast. Hér hefur bara verið svo mikið að gera.

Strákarnir mínir orðnir 12 ára og ég bara eldist ekkert. Wink

Fór að hitta Dr Bækl og hann gaf svosem ekki góðar fréttir en ég ætla að hitta Dr. Liðmann næsta fimmtudag en þá fer ég á SHA að fá skammtinn minn og þá förum við yfir stöðuna.

En svo er ég búin að sauma alveg heila helling. Fékk nefnilega ríting í bakið frá ákveðnum aðila og það fauk í mig já ég varð reið og ákvað að nota reiðina til að sauma. Það hefur gengið mjög vel.

Við vorum svo tvö ein hjónakornin um síðustu helgi en drengirnir fóru í ferðalag með afa og ömmu í bústaðinn. Spennandi dagar hjá þeim. Þau nýbúin að kaupa sér nýjan bíl og því allt svo spennó.

Svo í morgun komu góðar "gamlar" vinkonur mínar. Hreint ekki gamlar konur nei nei en skemmtilegar. Áttum notarlega stund saman.

En svo komu fréttir dagins. Annar tvíburinn með barnaliðagigt. Andsk... já en drengurinn hefur góðu genin frá múttu sinni og sagði bara..... þetta er þung binding. Og ekki meira um það annað en mamma rosalega er ég heppin... sko sjáðu til þú kannt þetta allt og þá þarf ég ekki að finna upp hjólið. Hann er æði þessi drengur.

 


Ástin og lífið og stjörnuspáin mín

Bogmaður: Með smitandi ást þinni á lífinu getur þú hjálpað manneskjunni sem veit ekki hvernig hún á að haga sér.

Já svona hljóðar stjörnuspáin mín í dag. já ég viðurkenni að ég er ástfangin af lífinu. Það er svo skemmtilegt að vera til og gaman að gera skammarstrik en það hefur mér aldrei þótt leiðinlegt.

Ef ég get hjálpað einhverjum og smitað af þessari ást þá geri ég það InLove

Eigið góðan dag. Heart


Mánudagur enn og aftur

Jæja þá er enn komin mánudagur og ég komin hér við tölvuna með kaffibolla. Í dag er karlinn heima og verður settur í að gera eitthvað leiðinlegt eins og að henda og gefa úr geymslunni. Meira draslið sem maður getur dregið að sér. Ég hef haft það á stefnuskránni að sanka ekki að mér drasli síðan við fluttum hingað í Sjálandið. Við tókum alveg rúmt ár eftir að við fluttum að fara í gegnum ýmislegt og var margt hreinlega látið fara í gefa-henda ferð. En einhvern vegin verður geymslan fyrir því áfalli að þar safnast ýmislegt fyrir. Og nú á að laga til og gera partývænt J

Annars ætla ég að sauma og þ.h í dag. Er með helv.... verki í höndunum og fætinum þessum sem sífellt er í stjórnarandstöðu.

En allavega ég vildi líka láta ykkur vita að ég segi ekki af mér það er á hreinu Cool

Eigið góðan dag.


Laugardagur

Siminn hringdi kl 10 eða þar um bil í morgun. Ég var enn uppí rúmi þrátt fyrir að vita að konan mundi hringja. Æi það var bara svo gott að lúlla. Ég stökk framúr svona mv liðagigtina og svaraði hress. jú jú ég skyldi skjótast í föt og setja upp varalitinn.

En ég þurfti auðvitað að kíkja aðeins í blaðið og var því enn óklædd og næstum komin með varalit rúmum klukkutíma seinna. En allt tókst þetta.

Svo sátum við hér í hugmyndavinnu og kaffærðum hvor aðra með kjaftagangi og saumuðum og drukkum kaffi fram um miðjan dag. Þá var konan sótt. Gott að eiga svona góða vini Kissing

Ég sannfærði konuna um hvernig við ættum að ráðast í að sauma EMS jóladagatalið og féllst hún á mína hugmynd. Var ekki sannfærð í upphafi en ég er svo góður sölumaður ! Þetta verður eitt af verkefnum ársins 2009.

Ferðalög báru líka á góma og ef allt fer á besta veg gætu tvö ferðalög verið uppi á borðinu. Uss segi ekkert meira um það að sinni.

 


13 jan

Hvað tíminn flýgur komin 13 janúar í hvelli.

Ég er búin að fara fyrstu ferð ársins á SHA og láta „fylla á“. Ég fýla mig eins og batterý en þetta er gott batterý.

 Dr. Liðmann frábær eins og venjulega og þar sem vinstri fóturinn er eins og Steingrímur J alltaf í stjórnarandstöðu og með vesen þá ætlar hann sko Dr. Liðmann að tala við Dr. Bækl og sjá hvort ekki er hægt að gera eitthvað almennilegt við minn „Steingrím J“

Í gær var helv.. kalt og kuldinn skellti sér beint í verstu liðina. Og í dag er svona innidagur ég hreinlega neita að fara út ! Ég mótmæli kulda !!

Kreppan heimsótti okkur. Ég bauð henni ekkert inn hún bara þröngvaði sér inn um dyrnar. Rosalega dónó. Karlinn komin með breytt starfshlutfall og komin í 75% vinnu. Hann er því heima í dag og var heima í gær. Auðvitað „nota“ ég karlinn. Hann fór í Sorpu með dót og svo er bara að jaska honum út í tiltekt og svoleiðis. Um að gera að nota þessi 25% sem eftir eru.

Ég er bara eins og prinsessan á bauninni og bara fýla það. Komin með langan lista sem hann þarf að gera.Svo er bara að sauma og lesa. Er búin með 1 stk á árinu og tvö önnur að verða tilbúin. Best að sauma og sjá til þess að karlinn geri eitthvað Kissing


Sjálfstæðisbaráttan mín.

Árið 2008 var mér erfitt og stundum hreinlega fannst mér ég hafa tapað sjálfsæðinu. Við erum svo vön að "bara gera hlutina" án þess að hugsa um hversu gott við eigum að geta gert þetta og hitt. Að lenda svo í svona stórum þröskuldi eins og ég er í er bara andskoti erfitt og það að þurfa að biðja einhvern um að gera fyrir mann hluti sem eru svo sjálfsagðir er rosalega erfitt.

Ég þessi sjálfstæða vera á bara enn erfitt með að biðja um hjálp. Ég svona reyni að dröslast í gegnum þetta en verð að viðurkenna að í nokkur skipti stóð ég frammi fyrir því að verða að viðurkenna að ég var eins og strákurinn sem átti Búkollu að þurfti aðstoð og þá þurfti ég að taka hár úr halanum og segja baulaðu nú Búkolla mín ef þú heyrir og já biðja um hjálp.

Enn er ég í þessari stöðu að þurfa að biðja um hjálp og er örlítið skárri í þessu en í fyrra. Eitt af mínum áramótaheitum er að reyna og ég meina REYNA að skilja að ég er ekki súpermann og ég bara verð að lifa með þessari liðagigt og ganga á jafnvægisslá og stundum bara missa jafnvægið. En og já en.... sko ég GET þetta.

Veit að þetta ár verður betra og Dr Liðmann gerir allt sem hann getur fyrir mig og í lok árs get ég vonandi dansað :)


Gleðilegt ár

Já það kom árið 2009 sem sumir héldu bara að kæmi ekki þar sem 2008 boðaði bara bölsýnir.

 

En gleðilegt ár og hafið þökk fyrir liðin ár. Ég er auðvitað bjartsýn á árið 2009 sem verður flott ár og skilar okkur mun betri inní framtíðina.


Gleðileg jól

Annar dagur jóla er í dag ég þurfti að kíkja á dagatalið til að ganga úr skugga um að í dag er föstudagur.

Við hér bara búin að liggja í leti horfa á bíómyndir, spjalla og slappa af. Í dag er svo veisla hjá mömmu og pabba og við verðum 16 stk. Gaman að hittast svona. Og núna í fyrsta sinn öll saman í nýju íbúðinni þeirra.

Ég er semsagt komin á fætur en hjásvæfillinn hrýtur ógurlega hann hefur bara gott af því verður svona "sléttari" á eftir Kissing

Óska ykkur gleðilegrar hátíðar og vonandi hafið þið það sem best. Ég ætla að reyna að sauma nokkur spor núna en ég hef bara ekkert getað saumað lengi.


Þorláksmessa

Fór snemma á fætur enda forvitnin að drepa mig. Málið er að ég fékk með póstinum brúnt þykkt umslag og á því stóð. " Opnist 23 des". Og eins gott að kíkja ekki fyrr. Ég fékk mér ávaxtasafan minn og kaffi og kíkti hratt í Fréttablaðið en tók svo að opna umslagið. Brosti mínu blíðasta. Tók síðan símann og sló inn númer fyrir norðan. Nei það endalaust á tali. Ég klæddi mig því og setti upp andlitið og prófaði aftur og já þarna kom það. Takk frú H.

Skrapp síðan i Smáralind með múttu og mér til mikilla furðu var rólegt þar. Málið því fljót afgreitt. Og nú er bara að dúlla sér það sem eftir lifir dags.

Fór líka í þessa yndislegu skötuveislu hjá múttu í gær. Og ... dásamlegt. Lyktin alveg yndisleg og ég hefði vilja setja hana á flöskur ..  Ég hékk yfir pottinum og þefaði vel og lengi.

 

Gleðileg jól öll og hafið það sem best .


Rautt

Ég fór í sjúkraþjálfun nú í morgun. Svo sem ekkert merkilegt en þótt rautt sé litur jólanna þarf fólk ekki að taka það svo alvarlega að það aki yfir á rauðu ljósi.

Ótrúlegt hvað fólk er svellkalt að skella sér yfir á rauðu eins og ekkert sé. Þetta er ótrúlega algengt. Mér finnst umferðarhraðinn hafa minnkað síðan þessi kreppa skall á en aftur á móti leyfir fólk sér að fara yfir á rauðu eins og ekkert sé.

Spurning hvernig á að taka á því. Ekki hef ég neina patent lausn annað en að fara eftir umferðarreglunum.

Þarf út aftur á eftir en nú er það hárgreiðslan. Klipping og litaupplyfting. Fékk rauða lokka um daginn og ætla að bæta grænum við. Errm nei nei bara að grínast.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband